Thursday, July 06, 2006

ÉÉÉÉg vil fara...upp í sveit....trallalalala

Góðan daginn allir saman.
Jæja við erum loksins að fara í útilegu um helgina:) Hlakka svo til að komast út úr bænum. Ef það verður rigning þá pakka ég Bigga oní tösku og flyt til Spánar!! Við erum að fara í lopapeysubrúðkaup hjá frænda hans Bigga rétt hjá Hellu eða Hvolfsvelli ( er það ekki hvort sem er það sama ) þetta verður svaka fjör. Við erum búin að fá lánað tjald hjá mömmu og pabba. 4 herbergja með bílskúr...það er doldið mikið stórt.
Annars er ekki mikið að frétta af okkur annað en bara vinna vinna vinna. Það er ekki gaman að lenda í Köben í 30 stiga hita og lenda svo heima í rigninga sudda dauðans. Maður verður bara þunglyndur og bitur á þessu. Einn íslenskur farþegi á leiðinni heim frá Köben spurði mig um verðrið og hló svo bara þegar hann sá svipinn sem kom á mig. Hann sagði " Æi ég ég ósköp fegin að komast heim í rigninguna og úr þessum svakalega hita sem er búin að vera í Köben" Ég var næstum búin að lemja hann og henda honum út á ferð!! Huhhh.
Allaveganna nóg af þessu væli...ééég´r að fara upp í sveit...!!!
Bæbb