Thursday, April 27, 2006

Sæli nú..
Ég var á leiðinni frá Keflavík í morgun og fór mikið að pæla í hraunið á leiðinni. Ég held ég hafi verið dolið þreytt eitthvað eða kannski að þrýstingurinn á leiðinni frá Ameríkunni hafi verið eitthvað skrítinn. Ég fór að hugsa hvaðan allar þessar gömlu sögur um álfa og huldufólk hafa komið. Hefur einhver spáð í það??? Ég held ég sé komin með skýringuna á þessu öllu saman. Ég komst að þessari niðurstöðu. Það voru smalar á sveppatrippi sem bjuggu til þessar sögur. Þeir sátu þarna, með ofskynjanir, á steini uppi í fjalli...voða voða gaman hjá þeim;) Svona hugsar maður, örþreyttur í rútunni, nýkomin heim úr næturflugi.....gaman að þessu.