Saturday, January 25, 2003

Mér finnst nýi piparsveinninn sætur, hann er algjört hönk miðað við þetta gerpi sem var fyrst.

Vááááá er maður latur eða er maður latur??? Ég bara spyr.
Það er kannski komin tími til að maður skrifi eitthvað á þetta blessaða blogg.
Ég er að fara í 2 vikur til Þýskó á námskeið, verður örugglega geðveikt gaman.
Við eigum að búa hjá einhverjum fjölskyldum, vona bara að ég lendi ekki hjá einhverjum leiðinlegum með sítt að aftan og með feitt yfirvaraskegg (steríótæp).
Ég vona bara að leikurinn verði sýndur þarna úti, ég verð alveg miður mín ef ég missi af honum........ÁFRAM ÍSLAND!!!!!!!!!!