Thursday, February 16, 2006

Bigginn minn á Afmæli í dag!! Hann er 27 ára og verður bara betri með aldrinum:)

Tuesday, February 14, 2006

Allir saman nú..komum könunum til hjálpar!!

Aumingja kanarnir, allt er að verða vitlaust þarna úti útaf hálkunni. 80 bíla árekstur og læti þarna á einni hraðbrautinni og samkvæmt einni fréttakonunni var lögreglan voða góð og sektaði engann:) En mér finnst að við íslendingar, þaulvanir í hálkunni, ættum að koma saman og senda hjálp út....Sameinumst hjálpum þeim..... Fyrir þá sem vilja leggja sitt af mörkum vil ég benda á hjálparsveit skáta, þeir eru núna á fullu að safna saman naggladekkjum til að senda út...hehe.
Yfir og út...

Monday, February 13, 2006

Góðann Mánudag....

Jæja þá er maður búin að fara á árshátíð og allt bara. Haldin var í Laugardalshöllinni stórhátíð Icelandair Group. Þetta var alveg hrikalega flott hátíð, góður matur og skemmtileg atriði á vegum Spaugstofunar. Þarna voru allir í sínu fínasta pússi í góðum gír, sýna sig og sjá aðra.
Your´s truly var í voða voða flottum kjól, sem sést hérna til hliðar.
Sunnudeginum var síðan bara eitt uppí sófa með video og drasli. Bigginn minn dekraði við þreyttu konuna sína allann daginn:)
On with the butter.....
Frú Guðrún í fína kjólnum að módelast inní eldhúsi.