Thursday, January 19, 2006

Svara þessu í Comments:)
Ætla aðeins að herma eftir Láru sætu.

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Hvernig eru augun mín á litinn?
5. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
6. Lýstu mér í einu orði.
7. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
8. Lýst þér ennþá þannig á mig?
9. Hver er minn besti eiginleiki?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

14 Comments:

At 7:37 PM, Anonymous Anonymous said...

Bara prófa:)

 
At 8:39 PM, Anonymous Anonymous said...

heheh þetta virkar... :)

 
At 8:46 PM, Anonymous Anonymous said...

1. Ég er Lára ofurskutla
2. Jáhá.. þokkalega
3. Það var í Vogaskóla þegar við byrjuðum báðar í skólanum.. ég eftir að hafa komið úr Ísaksskóla og þú úr Hvassó
4. Þau eru ótrúlega sérstök og falleg. Þau eiginlega bara skipta um lit.. eru svona græn grá brún
mjög falleg :)
5. Pæja Dauðans. Er með svo flott bílnúmer og er svo sannarlega pæja dauðans.
6. Frábær vinkona
7. Ákveðin ung dama.. annars hreinlega bara man ég það ekki sko..
8. Jáhá þú ert ennþá ákveðin.. en þú ert ein af bestu vinkonum mínum og ert æðisleg. Mér þykir obboðslega vænt um þig.
9. Þú ert hreinskilin, hrein og bein
10. úff það er svo ótrúlega margt!
Frankfurt 1995 og 2004 standa án efa upp úr! Þröstur sæti fuglinn okkar.. Appelsínugula peysan upp í sumarbústað.. og allt annars spúggí og skemmtilegt sem við höfum brallað saman!
11. Ég vil meina að ég hafi átt þátt í að gefa þér stærstu gjöf lífs þíns!! Ég vil taka alveg hrikalega stórt kredit fyrir það að þið Biggi eruð saman í dag!!! :) Ekki satt?
12. Mjöööög vel :)
13. Úff ætli það hafi ekki verið núna um daginn þegar við vorum að reyna að koma þessari bloggsíðu þinni í gagnið! Síðan þá ertu alveg hreint orðinn algjör bloggsnilli!
14. Eflaust...
15. búin.. þú stalst þessu af mér beljan þín.. heheheh neee djók..
Elska þig ossssssa mikið..

 
At 9:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir þetta Lára mín:) Gaman að sjá svona fallegt um mann:)

 
At 3:24 PM, Anonymous Anonymous said...

1. ég er manninn þinn THE Biggest
2.við erum bestustu vinir í heimi!!!
3.við hittumst fyrst á Klúbbnum við gullinbrú, þar sat ég með vinkonu þinn sem var yfirmaður minn meðan ég vann á digital ísland (þangað til hún rak mig )hehe og nínu vinkonu þinn og dabba vini mínum,ég segji við lárau hvort hún eigi ekki einhverja sæta vinkonu og hún hringir í stelpu sem ert síðan þú :)
4.græn finnst mér að mestu ;)
5.sæta músin mín að því þú heitir það í símanum mínum :D
6.orðfáþvíekkilíst hehe (eitt orð)
7.sæta stelpa en með smá skeifu þegar ég sá þig fyrst :( en kjellinn lagaði það á no time ;)
8.alls ekki fann allt það góða í þér
9.ert fljóta fá mig til að brosa og hlægja
10.ég var með geðveikt svar í hausnum og það fór demit!!!!!!
11.íbúðina í þorláksgeisla sem var svo dýr
12.alltof!!!!!!!!!!!!
13.þegar ég vaknaði og kyssti þig bless
14.neibb
15.er ekki með blogg ( hata tölvur)

 
At 5:43 PM, Anonymous Anonymous said...

1. Guðrún heiti ég Helgadóttir
2. jámm
3. Aðalbyggingu Háskóla Íslands þegar þú labbaðir inn í tíma og ég eiginlega píndi þig til að setjast við hliðin á mér, fannst ég þekkja þig!
4. ehhh græn, minnir mig
5. Easy, Gugga Yo! Því ég byrjaði einhvern tímann á því að kalla þig þetta.
6. góð
7. Eins og að við þekktumst, eða ættum að þekkjast!
8. jáhá!
9. Þú ert þú sjálf
10. Þýska, Þýskaland, Frankfurt, Icelandair...
11. Ég gæfi þér flugfar til Þýskalands til að koma að heimsækja mig : )
12. Vel, en ekki nóg....
13. Þegar þú komst í útskriftina mína, alltof langt síðan.
14. nei, það er svo auðvelt að tala við þig!
15. Það getur bara vel verið...

 
At 6:35 PM, Anonymous Anonymous said...

1.Ég er hún Jónína þín:)
2.Já við erum það svo sannarlega. Ég hef aldrei átt jafn yndislega vinkonu og þig og þó svo að við höfum ekki mikið verið saman eða talað saman upp á síðkastið þá munum við alltaf vera bestu vinkonur.
3.Við hittumst fyrst í öðrum bekk í Ms. Þú gekkst inn og settist niður og ég og Sigrún veltum því fyrir okkur hvaða fýlupúki þetta væri eiginlega. Svo fórum við að spjalla í frímó(djö...hvað ég er halló.FRÍmó!!)en allavega, varð ég ástfangin og hef elskað þig frá þeim degi:)
4.Þú ert með ofsalega fallega græn augu sem endurspegla þinn innri mann.
5.Gugga queen. Þetta er bara flott þegar þú verður popp-,rokk-eða súperstjarna.Í mínum augum ertu það nú þegar.
6.Einstök.
7.Ekkert allt of vel.
8.Ó nei! Alls ekki.
9.Má ég bara nefna einn, ohhh!!!! Þú ert ótrúlega fyndin.
10.Eiginlega bara allt. Sorry get ekki svarað þessu betur. Einu sinni þá vorum við alltaf saman og það er nánast allt sem minnir mig á þig.
11.Íbúðina í Þorláksgeisla(því þig langar greinilega mikið í hana) mörg börn(því ég veit þig langar í soleis)og gott líf(því mér þykir svo vænt um þig).
12.Ég þekkti þig best af öllum og ég stefni að því að gera það aftur:)
13.29.des minnir mig. Þegar þú og Biggi buðuð mér og óskari í mat.
14.Alltaf getað sagt þér allt, nema einu sinni en svo auðvitað sagði ég þér það.
15.Get það ekki, ég er ekki með svona blogg.

 
At 7:08 PM, Anonymous Anonymous said...

1. Anna Sigrún æðislega heiti ég
2. Nei, ég hata þig!! Nauts, ég elska þig mest af öllum og þú ert besta vinkona mín.
3. Humm, ætli það hafi ekki bara verið á fæðingardeildinni þegar ég fæddist. Þú varst 4 ára og ég 0 ára, þannig að við höfum þekkst nokkuð lengi.
4. Þau eru ótrúlega fallega einhvernvegin græn á fallega andlitinu þínu :)
5. Hahaha Gudda Grís, Öskubuska, Já Prump, Monica !! Krefst ekki útskýringar.
6. Yndisleg
7. Man nú ekkert eftir því. En örrugglega vel, varst alltaf svo góð við mig þegar við vorum littlar, "SYSTIR"
8. Að sjálfsögðu, en vorum samt ekkert alltof góðar vinkonur þegar þú varst á gelgjunni og svo þegar ég var á gelgjunni. Þú barðir mig!! Situr ennþá í mér.. En það þroskaðist af okkur þegar við föttuðum hversu æðislegar við báðar erum saman!!
9. Þinn besti eiginleiki?? shitt, þeir eru nú ekki margir... hehe Þú ert svo hlý,góð, fyndin!! Og Skipulögð. Ert yfirleitt með allt á hreinu.
10. Vá, á ég að fara að telja það upp? Hlátursköstin og spassaköstin sem við tökum saman. Þau eru alltaf skemmtileg:) Hlæjum yfirleitt voða voða mikið!!
11. Ég myndi bara vera búin að gefa þér það!!hummm... kisu sem er alveg eins og Pési!!
12. Ekki neitt, who are you ??
13. Ég sá þig síðast í gær þegar ég kom í heimsókn og skuttlaði þér og Bigga á þorrablót. Elska sófann þinn!!
14. Neipps, það hefur aldrei gerst. Nema kannski þegar þú hélst að það vildi engin halda með þér uppá afmælið þitt og varst svo leið. En Biggi turned that frown upside down ;)
15. Á ekki blogg!!!

 
At 6:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Góðar minningar með mér og önnu sigrúnu og guðrúnu eru aðallega :
GO GO JASON :)

hehehhehehehhe

 
At 11:32 AM, Anonymous Anonymous said...

hei lára!! ég var MEEEEGASVÖL þegar ég var hummmm hvað var ég gömul þegar þið vinkonunar komuð til germany ??
allaveganna voða lítil

 
At 2:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ sæta, ætla að svara spurningunum:
1. Föðursystir þín.
2. Ójá.
3. Hittumst á fæðingardeildinni,
líklega daginn sem þú fæddist.
4. Þau eru græn.
5. Held nú alltaf upp á "litla
sílið" í anda afa Árna.
6. Stórskemmtileg.
7. Fannst þú eitthvað það
fallegasta sem ég hafði augum
litið.
8. Ennþá fallegri, ef eitthvað er.
9. Heiðarleiki og húmor.
10.Sætar löggur minna mig á þig ;)
11.Hamingja.
12.Nokkuð vel.
13.Gamlárskvöld.
14.Man ekki eftir því.
15.Er ekki með blogg.

 
At 5:22 PM, Anonymous Anonymous said...

[B]NZBsRus.com[/B]
Escape Sluggish Downloads With NZB Downloads You Can Instantly Find HD Movies, PC Games, MP3 Singles, Software & Download Them @ Dashing Speeds

[URL=http://www.nzbsrus.com][B]NZB[/B][/URL]

 
At 2:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Infatuation casinos? pick out this na‹ve [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] waterway take french leave and form come up with creditable online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also into our redesigned [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] touch at http://freecasinogames2010.webs.com and be the conqueror in staunch incredibly misled !
another late-model [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] chain of events is www.ttittancasino.com , during german gamblers, submit c be communicated since unrestrained online casino bonus.

 
At 10:50 AM, Anonymous Anonymous said...

top [url=http://www.c-online-casino.co.uk/]uk online casinos[/url] coincide the latest [url=http://www.realcazinoz.com/]casino[/url] autonomous no set aside reward at the foremost [url=http://www.baywatchcasino.com/]baywatchcasino
[/url].

 

Post a Comment

<< Home